Athlon Ares HLR 4–24×50 APRS-H2 SFP IR MIL
Athlon Ares HLR 4–24×50 er léttur og öflugur riffilsjónauki hannaður sérstaklega fyrir veiði, þar sem góð myndgæði, nákvæmni og lág þyngd skipta miklu máli. Kíkirinn er byggður úr einni heilli túpu úr flugvélagráðu áli sem gefur honum mikinn styrk án þess að auka þyngd að óþörfu.
Með 4–24× stækkun og 50 mm framlinsu býður Ares HLR upp á mjög fjölhæft stækkunarsvið, hvort sem skotið er á styttri eða lengri færum. Fully Multi-Coated linsur bæta ljósflutning og skila bjartri, skýrri mynd með náttúrulegum litum við fjölbreytt birtuskilyrði.
APRS-H2 MIL krossinn er upplýstur og staðsettur á öðru brenniplani (SFP). Krossinn er grafinn í glerið og hannaður til að auðvelda hraða og nákvæma miðun. Upplýsing kross er sérstaklega gagnlegur þegar birtuskilyrði versna, til dæmis snemma morguns eða undir kvöld.
Parallax er stillanlegt frá 10 yards að óendanlegu og nákvæmir 0,1 MIL smellir gera einfalt að fínstilla kíkinn. Ares HLR er argonfylltur, sem dregur úr hættu á móðumyndun að innan, og lokað húsið gerir hann vatnsheldan, móðuheldan og höggþolinn.
Þrátt fyrir 24× hámarksstækkun og 50 mm framlinsu vegur kíkirinn aðeins 21 oz / um 595 g, sem gerir hann sérstaklega áhugaverðan fyrir veiðimenn sem vilja öflugan sjónauka án óþarfa þyngdar á rifflinum.
Helstu eiginleikar
- Stækkun: 4–24×
- Framlinsa: 50 mm
- Túpa: 30 mm
- Kross: APRS-H2 MIL
- Annað brenniplan (SFP)
- Upplýstur kross
- Kross grafinn í gler
- Fully Multi-Coated linsur
- Parallax: 10 yds – ∞
- Smellgildi: 0,1 MIL
- Eye relief: 3,97″ / 10,1 cm
- Sjónsvið við 100 yds: 40,9–6,9 ft
- Lengd: 13,8″ / 35,1 cm
- Þyngd: 21 oz / um 595 g
- Ein heildsteypt túpa úr flugvélagráðu áli
- Argonfylltur
- Vatnsheldur, móðuheldur og höggþolinn
- Vörunúmer: 212135












