Athlon Midas HMR Gen2 2–12×42 APRS-H2 SFP IR MIL
Athlon Midas HMR Gen2 2–12×42 er léttur, fjölhæfur og sterkbyggður riffilsjónauki hannaður sérstaklega fyrir veiði. Midas HMR Gen2 línan sameinar góð myndgæði, lága þyngd og áreiðanlega uppbyggingu fyrir veiðimenn sem vilja kíkir sem hentar við fjölbreyttar aðstæður.
Kíkirinn er með 2–12× stækkun og 42 mm framlinsu. Lága 2× stækkunin ásamt víðu sjónsviði hentar vel þegar skotfæri eru styttri, á meðan 12× stækkun gefur góða möguleika á nákvæmri miðun á lengri færum.
Fully Multi-Coated linsur bæta ljósflutning og skila bjartri, skýrri og kontrastmikilli mynd með náttúrulegum litum. APRS-H2 MIL krossinn er upplýstur og staðsettur á öðru brenniplani (SFP). Upplýsing kross auðveldar miðun þegar birtuskilyrði eru krefjandi, svo sem snemma morguns eða undir kvöld.
Parallax er stillanlegt frá 10 yards að óendanlegu og nákvæmir 0,1 MIL smellir gera einfalt að fínstilla kíkinn. Með aðeins 19 oz / um 539 g þyngd og 30,5 cm lengd er þetta nettur og léttur kostur sem bætir ekki óþarfa þyngd á riffilinn.
Kíkirinn er byggður á einni heilli túpu úr flugvélagráðu áli og er argonfylltur til að draga úr hættu á móðumyndun að innan. Hann er vatnsheldur, móðuheldur og höggþolinn og því hannaður fyrir krefjandi notkun við raunverulegar veiðiaðstæður.
Helstu eiginleikar
- Stækkun: 2–12×
- Framlinsa: 42 mm
- Túpa: 30 mm
- Kross: APRS-H2 MIL
- Annað brenniplan (SFP)
- Upplýstur kross
- Kross grafinn í gler
- Fully Multi-Coated linsur
- Parallax: 10 yds – ∞
- Smellgildi: 0,1 MIL
- Eye relief: 3,62″ / 9,2 cm
- Sjónsvið við 100 yds: 55,7–9,6 ft
- Lengd: 12″ / 30,5 cm
- Þyngd: 19 oz / um 539 g
- Ein heildsteypt túpa úr flugvélagráðu áli
- Argonfylltur
- Vatnsheldur, móðuheldur og höggþolinn
- Vörunúmer: 213057














