Dovre 100% Merino ullarnærfatasett – bolur og buxur
Flott tilboð á 100% merino ullarnærfatasetti frá Dovre í Noregi. Vandað og hlýtt sett sem samanstendur af síðerma bol og síðum nærbuxum.
Merino ullin er mjúk, létt og andar vel, heldur vel á hita og hentar einstaklega vel sem fyrsta lag við húð í köldu veðri. Frábært undir veiðifatnað, útivistarfatnað, vinnuföt eða hversdagsföt yfir vetrartímann.
Upplýsingar um vöruna:
- 100% Merino ull
- Bolur og buxur í setti
- Þyngd efnis: 170 g/m²
- Fínleiki ullar: 20,5 micron
- Standard stærðir
- Stærðir: M–XXL
- Litur: Svartur
- Framleitt fyrir Dovre í Noregi
- Hlýtt, létt og þægilegt
- Andar vel og hjálpar til við að halda jöfnum líkamshita
Vönduð norsk vara frá Dovre – frábært grunnlag fyrir íslenskar aðstæður.






