Silva Ranger S speglaáttaviti
Silva Ranger S er vandaður og fjölhæfur speglaáttaviti fyrir göngufólk, veiðimenn, fjallamenn og aðra útivistaráhugamenn. Áttavitinn er einfaldur í notkun en býður jafnframt upp á þá nákvæmni og eiginleika sem þarf til öruggrar rötunar við fjölbreyttar aðstæður.
Innbyggði spegillinn gerir þér kleift að sjá áttavitanálina á sama tíma og miðað er á ákveðinn stað í landslaginu. Þannig er auðveldara að taka nákvæma stefnu, sérstaklega í opnu landslagi og þegar farið er um lengri vegalengdir.
Á grunnplötunni eru mælikvarðarnir 1:25.000 og 1:50.000, sem auðvelda fjarlægðarmælingar á korti. Áttavitinn er einnig með sjálflýsandi merkingum fyrir notkun í myrkri, gripgóðum snúningshring og losanlegri hálsól með öryggisopnun.
Meðfylgjandi hallakort hjálpar til við að meta halla lands og hversu krefjandi leiðin getur verið. Það getur einnig nýst við mat á snjóflóðahættu, en hættan eykst þegar halli fer yfir 30°.
Helstu eiginleikar:
- Spegill fyrir nákvæmari miðun og stefnutöku
- Hentar vel fyrir langar vegalengdir og opið landslag
- Gripgóður snúningshringur
- Sjálflýsandi merkingar fyrir rötun í myrkri
- Kortamælikvarðar 1:25.000 og 1:50.000
- Hallakort til að meta bratta og landslag
- Losanleg hálsól með öryggisopnun
- Hentar göngufólki, veiðimönnum og fjallafólki


















