Athlon Midas G2 UHD 10×25 handsjónauki
Athlon Midas G2 UHD 10×25 er nettur og einstaklega öflugur handsjónauki fyrir þá sem vilja mikla stækkun, skýra mynd og gott sjónsvið án þess að bera stóran og þungan sjónauka.
Þrátt fyrir fyrirferðarlitla 10×25 stærð kemur sjónaukinn skemmtilega á óvart. Myndin er björt, skörp og litir náttúrulegir, sem gerir hann frábæran í veiði, útivist, ferðalög og almenna náttúruskoðun.
Midas G2 UHD er byggður á léttu og sterku magnesium undirvagni og búinn Extra-Low Dispersion (ED) gleri ásamt fullhúðaðri ljósfræði. Hágæða BaK-4 prismur, ESP Dielectric húðun og phase coating hjálpa til við að hámarka ljósflutning, skerpu og litaskil.
XPL húðun ver ytri linsurnar gegn rispum, ryki og óhreinindum. Sjónaukinn er jafnframt vatns- og höggþolinn og argon-fylltur, sem gerir hann vel undirbúinn fyrir íslenskar aðstæður.
Helstu eiginleikar
- 10x stækkun
- 25 mm linsur
- Extra-Low Dispersion (ED) gler
- Advanced Fully Multi-Coated ljósfræði
- BaK-4 prismur
- ESP Dielectric og Phase Coating
- XPL linsuvörn gegn rispum og óhreinindum
- Létt og sterkt magnesium hús
- Vatns- og höggþolinn
- Argon-fylltur
- Stillanlegir Twist-Up augnbollar
- Nett stærð sem tekur lítið pláss
- Góð taska og breið neoprene ól fylgja
Frábær kostur fyrir þá sem vilja nettan handsjónauka sem auðvelt er að hafa með sér, án þess að fórna myndgæðum eða stækkun.







