Bushnell R5 8×42 Handsjónauki
Nýi Bushnell R5 8×42 er vandaður og fjölhæfur handsjónauki sem sameinar breitt sjónsvið, skarpa mynd og sterkbyggða hönnun. 8× stækkunin og 42 mm linsurnar gefa mjög góða blöndu af birtu, stöðugri mynd og víðu sjónsviði, sem gerir sjónaukann sérstaklega hentugan til að fylgjast með fuglum og öðrum dýrum á hreyfingu, ásamt almennri notkun við veiðar og útivist.
Sjónaukinn er með BaK-4 prismum, PC3 Phase Coating og Dielectric Prism Coating sem vinna saman að því að bæta ljósflutning, skerpu og kontrast. Fully Multi-Coated linsurnar skila bjartri og náttúrulegri mynd við fjölbreytt birtuskilyrði.
Linsurnar eru varðar með Bushnell EXO Barrier™ húðun sem hrindir frá sér vatni, olíu, ryki og óhreinindum og hjálpar til við að halda linsunum hreinum við krefjandi aðstæður.
R5 er IPX7 vatnsheldur og köfnunarefnisfylltur til að koma í veg fyrir móðumyndun innan á linsunum við miklar hitabreytingar. Sterk og höggþolin bygging með gúmmíhúðuðu gripi gerir hann tilbúinn fyrir íslenskar veðuraðstæður.
Sérstaklega þægilegt er Vault Lite hulstrið sem fylgir með. Það gerir auðvelt að hafa sjónaukann öruggan og aðgengilegan framan á sér við veiðar og útivist.
Helstu eiginleikar
- Stækkun: 8×
- Linsuþvermál: 42 mm
- Prismakerfi: Roof
- Prismagler: BaK-4
- Sjónsvið: 390 ft @ 1.000 yds / um 130 m @ 1.000 m
- Eye relief: 17,5 mm
- Exit pupil: 5,3 mm
- PC3 Phase Coating
- Dielectric Prism Coating
- Fully Multi-Coated linsur
- EXO Barrier™ linsuvörn
- IPX7 vatnsheldni
- Köfnunarefnisfylltur og móðuvarinn
- Twist-up augnskálar
- Hægt að festa á þrífót
- Sterk og höggþolin bygging
- Gúmmíhúðað grip
- Lengd: 155 mm
- Þyngd: um 700 g
- Litur: Ranger Green
- Vörunúmer: BU-R5-842
Fylgir með
Vault Lite hulstur, linsuhlífar, hálsól og hreinsiklútur.
Bushnell R5 nýtur Bushnell Lifetime Warranty.












