Olympia 100% Merino ullarbolur með rennilás
Mjög vandaður og hlýr ullarbolur frá Olympia, framleiddur úr 100% merino ull. Olympia er hluti af JBS Textile Group, sem keypti vörumerkið árið 1989 og hefur áratuga reynslu af framleiðslu á vönduðum nær- og grunnfatnaði.
Merino ull hentar einstaklega vel sem grunnlag þar sem hún einangrar vel, hjálpar til við hitastjórnun og flytur raka frá húðinni. Ull hefur einnig náttúrulega eiginleika sem hjálpa til við að draga úr lykt, sem gerir bolinn hentugan bæði til daglegrar notkunar og við meiri hreyfingu.
Bolurinn er með háum kraga og rennilás að framan, þannig að auðvelt er að loka vel að hálsinum þegar kalt er eða opna fyrir meiri loftun þegar á reynir. Hann er mjúkur og þægilegur næst húð og hentar vel allt árið um kring – í vinnu, gönguferðir, útihlaup, veiði, skíði eða fjallgöngur.
Við höfum sjálf góða reynslu af Olympia ullarfatnaði og hefur hann staðið sig mjög vel í samanburði við mun dýrari merki.
Helstu eiginleikar:
- 100% merino ull
- Hálsmál með rennilás
- Hlýr og léttur
- Hitastýrandi eiginleikar
- Flytur raka frá húð
- Hjálpar til við að draga úr lykt
- Mjúkur og þægilegur næst húð
- Hentar bæði sem nærbolur og millilag
- Frábær fyrir útivist, vinnu og hversdagsnotkun
- Stærðir: S–XXL
- Litur: Svartur
Vandaður merino ullarbolur sem gefur dýrari vörumerkjum lítið eftir – frábært val fyrir íslenskar aðstæður.




